Lífið

Donald Trump mætti óboðinn í brúðkaup

Bergþór Másson skrifar
Samsett mynd af Trump í golfi og í umræddu brúðkaupi.
Samsett mynd af Trump í golfi og í umræddu brúðkaupi. Vísir/Getty Skjáskot/TMZ
Bandaríkjaforsetinn Donald Trump mætti óvænt í brúkaup sem haldið var í veislusal golfvallar hans í Bedminster Township í New Jersey ríki á föstudaginn.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem forsetinn lætur sjá sig í brúðkaupi sem haldið er í golfklúbbi hans. Samkvæmt slúðurmiðlinum TMZ kemur fram í auglýsingabæklingi klúbbsins að ef Trump sé á svæðinu á stóra deginum, þá mun hann líklega stoppa og óska hjónunum til hamingju, hann gæti líka mögulega tekið myndir með hjónunum.

Nýbökuðu hjónin Jenna Buchholtz og Gerald Papa voru ánægð með mætingu forsetans, eins og sést á myndbandi sem TMZ birtir á síðu sinni.


Tengdar fréttir

„Skítseyðin“ svara ummælum Trump

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, eyddi hluta af ræðu sem hann hélt á mánudaginn til þess að hnýta í spjallþáttastjórnendur þar ytra. Þeir hafa nú svarað fyrir sig.

Sautján ríki stefna ríkisstjórn Trump

Sautján ríki Bandaríkjanna hafa kært ríkisstjórn Donalds Trumps vegna aðskilnaðar foreldra, sem koma ólöglega til landsins, frá börnum sínum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×