Lífið

Björn Bergmann kaupir flugvél: „Draumur að rætast“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Björn í leik með íslenska landsliðinu. Hann leikur sem atvinnumaður í knattspyrnu í Rússlandi.
Björn í leik með íslenska landsliðinu. Hann leikur sem atvinnumaður í knattspyrnu í Rússlandi. Vísir
Landsliðsmaðurinn Björn Bergmann Sigurðarson hefur fest kaup á flugvél en hann greinir frá því á Instagram-reikningi sínum.

Þar segir: „Stoltur eigandi af 1976 Piper Cherokee Warrior. Draumur að rætast.“

Björn virðist hafa fjárfest í vélinni ásamt vini sínum Róberti sem stendur með knattspyrnumanninum á mynd sem sjá má á Instagram.

Björn Bergmann var í eldlínunni í Rússlandi á dögunum þegar íslenska landsliðið tók þátt á heimsmeistaramótinu.

 
Proud owners of 1976 Piper Cherokee Warrior. A dream come true

A post shared by Bjorn Sigurdarson (@bbsigurdarson) on Jul 1, 2018 at 10:31am PDT






Fleiri fréttir

Sjá meira


×