Lífið

Stjörnurnar lesa vandræðaleg skilaboð frá mömmunum

Stefán Árni Pálsson skrifar
Mömmur senda oft á tíðum skemmtileg skilaboð.
Mömmur senda oft á tíðum skemmtileg skilaboð.
Jimmy Kimmel fær stjörnurnar oft til að lesa upp allskyns skilaboð sem þær fá til að mynda á Twitter.

Á dögunum var ákveðið að fá heimsþekkta einstaklinga til að lesa upp skilaboð frá mæðrum þeirra og var það gert í tilefni af mæðradeginum sem var í maí.

Útkoman var nokkuð spaugileg eins og gera mátti ráð fyrir en þeir sem tóku þátt í leiknum voru: Anna Faris, Ike Barinholtz, Jack McBrayer, Adam Scott, Kristen Bell, Tony Hale, Patton Oswalt, Will Forte, YG, og Anthony Anderson.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×