Erlent

Sænsk stjórnvöld hafa áhyggjur af tíðum skotárásum í landinu

Sighvatur skrifar
Sjö einstaklingar hafa látist í skotárásum í Svíþjóð undanfarnar tvær vikur. Stjórnvöld segja ástandið mjög alvarlegt og þessi mál eru í algjörum forgangi hjá sænsku lögreglunni. Málin varða flest uppgjör glæpagengja.
Sjö einstaklingar hafa látist í skotárásum í Svíþjóð undanfarnar tvær vikur. Stjórnvöld segja ástandið mjög alvarlegt og þessi mál eru í algjörum forgangi hjá sænsku lögreglunni. Málin varða flest uppgjör glæpagengja. Vísir/epa
Sjö einstaklingar hafa látist í skotárásum í Svíþjóð síðastliðnar tvær vikur. Þar af létust þrír eftir skotárásir á þriðjudag og þriðjudagskvöld. Einn lést í Malmö og tveir í Örebro en einn er í haldi lögreglu grunaður um verknaðinn í Örebro.

Stefan Löfven, forsætisráðherra landsins, segir í samtali við Aftonbladet ljóst að yfirvöld glími nú við aumkunarverða og kaldrifjaða morðingja, líkt og hann orðaði það þegar hann greindi frá ákvörðun sinni. Hann segir að stjórnvöld hafi veitt lögreglu allan þann stuðning sem óskað hafi verið eftir og meira til. Sé þörf á frekari úrræðum verði orðið við því. „Við höfum varið auknu fé í löggæslu en við munum halda áfram að gera það sem við þurfum,“ sagði Löfven. „Við munum gera allt sem í okkar valdi stendur til að sýna fram á að samfélagið hefur að lokum alltaf betur en glæpamenn.“

Anders Thorberg ríkislögreglustjóri segir í samtali við sænska ríkissjónvarpið (SVT) að ástandið nú sé grafalvarlegt. Það hafi róast eftir hrinu skotárása í vor en nú sé aftur að verða mikil aukning. Hann segir að lögreglan beiti öllum sínum úrræðum og kröftum í þessum málum sem séu í algjörum forgangi.



Stefan Löfven, forsætisráðherra Svíþjóðar.Vísir/getty
Morgan Johansson, dóms- og innanríkismálaráðherra, tekur í samtali við SVT undir með ríkislögreglustjóranum. Ástandið sé alvarlegt og styrkja þurfi lögregluna enn frekar. Það þurfi að nýta þær lagaheimildir sem til staðar séu. Hann bendir á að handtökum lögreglu hafi fjölgað milli ára. Málið snúist um að halda áfram að láta hart mæta hörðu.

Johansson mun í kjölfar skotárásanna í Malmö og Örebro funda með lögregluyfirvöldum til að ræða hvað ríkisstjórnin geti gert til að aðstoða lögregluna enn frekar. Hann segist sannfærður um að lögreglan geri allt sem í hennar valdi stendur.

Tomas Tobé, talsmaður sænska hægriflokksins Moderaterna í löggæslumálum, gagnrýnir hins vegar ríkisstjórnina og segir aðgerðir hennar ekki duga til. Hann segir Löfven forsætisráðherra sýna linkind í málinu. Nú sé ekki tími til að kalla eftir upplýsingum um stöðuna, heldur þurfi að koma fram tillögur sem skerpi á viðurlögum gegn glæpagengjum.

Hægriflokkurinn leggur til að refsingar glæpagengja verði tvöfaldaðar og að símhleranir veði notaðar í auknum mæli í baráttunni gegn þeim. Tobé segir ljóst að ríkisstjórninni hafi mistekist í þeirri baráttu. Það sé allt of auðvelt fyrir gengin að fá til liðs við sig ungmenni og komast upp með mildar refsingar.


Tengdar fréttir

Tveir særðust í skotárás í Malmö

Fjölmennt lið lögreglu statt í hverfinu Nydala í sænsku borginni Malmö eftir að tilkynning barst um að tveir hafi særst í skotárás við Nydalatorg skömmu eftir klukkan 15 að staðartíma í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×