Innlent

Eldur í fjölbýlishúsi

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Slökkviliðið við æfingar.
Slökkviliðið við æfingar. Vísir/vilhelm
Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins barst tilkynning um mikinn reyk í húsnæði við Funahöfða rétt fyrir klukkan hálf sex í morgun. Þegar slökkvilið kom á svæðið var búið að slökkva allan eld.

Varðstjóri segir í samtali við fréttastofu að líklega hafi verið um minniháttar eld verið að ræða og ekki hafi verið þörf á reykræstingu. Einn var fluttur á sjúkrahús með hugsanlega reykeitrun.

Eldurinn kom upp í fjölbýlishúsi en barst ekki í aðrar íbúðir í húsinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×