Fótbolti

Segja eina stærstu stjörnu franska landsliðsins líta á sig sem hálfan Úrúgvæa

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Antoine Griezmann heilsar Lionel Messi fyrir leik Frakka og Argentínu í 16 liða úrslitum HM.
Antoine Griezmann heilsar Lionel Messi fyrir leik Frakka og Argentínu í 16 liða úrslitum HM. Vísir/Getty
Franski framherjinn Antoine Griezmann verður í sviðsljóinu á morgun þegar Frakkar mæta Úrúgvæ í átta liða úrslitum HM í fótbolta í Rússlandi. Í aðdraganda leiksins hafa komið fram í dagsljósið sérstök tengsl Antoine Griezmann við Úrúgvæ.

Antoine Griezmann verður í strangri gæslu þeirra Diego Godin og Jose Gimenez sem eru liðsfélagar hans hjá Atletico Madrid. Þeir þekkjast vel og eru miklir félagar ekki síst þar sem að Griezmann hefur náð mjög vel saman við Úrúgvæmennina tvo.

Dæmi um ást Griezmann á Úrúgvæ er að eftir að Úrúgvæ tryggði sig inn á HM þá tók Griezmann á móti þeim Godin og Gimenez á flugvellinum í Madrid klæddur landsliðsteyju Úrúgvæ.

Annað mjög gott dæmi um vinskap þeirra er að Diego Godin er guðfaðir dóttur Antoine Griezmann. BBC segir frá.

Griezmann hefur sjálfur talað um það í viðtölum að honum líði eins og hann sé hálfur Úrúgvæi.

„Þetta er þjóðin sem ég elska og landið sem ég elska. Þetta verður mjög tilfinningaþrungið fyrir mig,“ sagði Griezmann.

Nahitan Nandez, leikmaður Úrúgvæ, hefur einnig tjáð sig um sterk tengsl Antoine Griezmann og Úrúgvæ.

„Griezmann er mikill Úrúgvæmaður og hann lítur á sig sem Úrúgvæa. Þetta verður sérstakur leikur fyrir hann alveg eins og fyrir okkur,“ sagði Nahitan Nandez.

„Það eina sem ég vil segja er að ég vona að hann hagi sér vel á vellinum og gleymi því ekki að hann er hálfur Úrúgvæi,“ bætti Nandez við.

Luis Suarez hafði aftur á móti engan húmor fyrir svona pælingum.  „Hann er Frakki og veit ekkert hvað það er að vera Úrúgvæmaður,“ sagði Luis Suarez og bætti við:

„Hann veit ekkert um það hverjir við erum og hvað við þurfum að leggja á okkur til að ná árangri í fótbolta. Hann hefur gaman af okkar siðum og talar okkar tungumál. Okkur líður samt öðruvísi,“ sagði Luis Suarez.

Antoine Griezmann fagnar sigri í Evrópudeildinni með Diego Godin.Vísir/Getty



Fleiri fréttir

Sjá meira


×