Íslenski boltinn

KR með einn sigur í átta tilraunum gegn Óla Jó og Val

Anton Ingi Leifsson skrifar
Þessi maður er ólseigur.
Þessi maður er ólseigur. vísir/anton brink
KR og Valur mætast í kvöld í stórleik 12. umferðar Pepsi-deildar karla en þessi tvö Reykjavíkurstórveldi mætast á Alvogenvellinum í vesturbæ Reykjavíkur.

Flautað verður til leiks klukkan 19.15 og verður leikurinn í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Í kvöld mætast einnig KA og Fjölnir en leikar þar hefjast 18.30.

Ólafur Jóhannesson, þjálfari Vals og fyrrum þjálfari FH, hefur í gegnum tíðina haft gott tak á KR-ingum og líkar vel við að spila stóra leiki eins og gegn KR.

Hann tók við liðinu í október 2014 og síðan hefur Valsmönnum vegnað ansi vel gegn KR. Á fyrsta árinu spiluðu liðin þrjá leiki; tvo í bikar og einn í deild. Valur vann tvo leiki, þar á meðal bikarleikinn og vann bikarinn það árið, en liðið gerðu eitt jafntefli.

Árið 2016 töpuðu Valsmenn fyrri leiknum gegn KR en unnu síðari leikinn 2-0. Árið eftir fékk Valur svo fjögur stig af sex mögulegum gegn KR og fyrri leikurinn í ár endaði með 2-1 dramatískum sigri Vals.

Ólafur Jóhannesson hefur því náð í fjórtán stig af 21 mögulegu gegn KR frá því að hann tók við Val og slegið þá einu sinni út úr bikarnum. Það má því segja að fyrrum landsliðsþjálfarinn sé með gott tak á KR.

Það er spurning hvað gerist í kvöld en KR er í vandræðum og þarf á þremur stigum að halda. Liðið er í sjöunda sætinu með þrettán stig en Valsmenn eru á toppnum; sex sigurleikir í röð og eru með tveggja stiga forskot.

Leikir Vals og KR frá því að Ólafur tók við Val:

2015

Valur - KR 3-0

Valur - KR 2-0 (bikarkeppni)

KR - Valur 2-2

2016

KR - Valur 2-1

Valur - KR 2-0

2017

Valur - KR 2-1

KR - Valur 0-0

2018

Valur - KR 2-1

Valur í leikjunum átta: 14 stig af 21 mögulegu. Einu sinni áfram í bikar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×