Innlent

Vann 25 milljónir í Lóttóinu

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Vinningsmiðinn var keyptur á Seyðisfirði.
Vinningsmiðinn var keyptur á Seyðisfirði. Vísir/Stefán
Fyrsti vinningur gekk út í kvöld þegar dregið var í Lottóinu. Sá heppni fær 25,4 milljónir í sinn hlut.

Vinningstölur kvöldsins voru 2-9-24-25-35 og var vinningsmiðinn seldur i Dalbotni, Hafnargötu 2 á Seyðisfirði.

Þá hrepptu tveir heppnir spilarar bónusvinninginn að upphæð 219.990 krónur en til þess þarf að vera með fjórar tölur af fimm réttar auk bónustölunnar sem í þetta skiptið var 19. Vinningsmiðarnir voru annars vegar seldur í áskrift og hins vetar seldur í Gullnest, Gylfaflöt í Reykjavík.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×