Innlent

Ók viljandi framan á lögreglubíl

Bergþór Másson skrifar
Myndir frá vettvangi á Akureyri
Myndir frá vettvangi á Akureyri Sigurjón K.
Karlmaður ók bíl sínum viljandi framan á lögreglubíl á Akureyri í gær. Lögreglu höfðu borist nokkrar kvartanir vegna glæfralegs aksturs mannsins. Þegar lögreglumenn ætluðu að hafa afskipti af manninum ók hann á bíl þeirra.

Að sögn Hermanns Karlssonar, aðalvarðstjóra lögreglunnar á Norðurlandi eystra, bárust lögreglunni tilkynningar um „óeðlilegt og glæfralegt aksturslag“ mannsins við Eyjafjörð í gær.

Áreksturinn átti sér stað á meðan lögreglan var að leita að manninum til þess að stöðva hann.

„Allt í einu poppaði hann upp á þeim stað sem við vorum á og það sem gerðist var að hann dúndraði á lögreglubílinn“ segir Hermann.

Fréttin hefur verið uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×