Brexitmálaráðherrann segir af sér Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 8. júlí 2018 23:02 David Davis leiddi samningaviðræður Bretlands við ESB vegna Brexit. Vísir/Getty
David Davis hefur sagt af sér embætti sem Brexitmálaráðherra Bretlands. Töluverð spenna hefur verið á milli ráðherra í ríkisstjórn Theresu May og þingmanna Íhaldsflokksins eftir að hún setti fram sína sýna á það hvernig framtíðarsambandi Bretlands við Evrópusambandið yrði háttað eftir Brexit. Sky News greinir frá. Í síðustu viku náði ríkisstjórnin samkomulag um að samið yrði um um fríverslun með iðnaðar- og landbúnaðarvörur á milli Bretlands og ESB. Verður samningurinn byggður á því sem kallað er „sameiginlegt regluverk“ í breskum fjölmiðlum.Samkomulagið náðist á maraþonfundi hinna 26 ráðherra ríkisstjórnarinnar sem boðað var til þess að leysa ágreining um hvernig sambandi Bretlands og ESB yrði háttað eftir Brexit. Hörðustu stuðningsmenn Brexit innan Íhaldsflokksins voru þó ekki sáttir með samkomulagið og sagði leiðtogi hóps þingmanna sem teljast til harðra stuðningsmanna Brexit að mögulegt væri að samkomulagið væri verra en að Bretland myndi yfirgefa ESB án samkomulags um framtíðarsamband ríkisins við ríkjasambandið. Davis var skipaður Brexitmálaráðherra árið 2016 og var helsti samningamaður Bretlands í Brexit-viðræðum við ESB. Sem stendur hefur ekkert verið gefið upp um af hverju Davis ákvað að segja af sér embætti.
Brexit Evrópusambandið Tengdar fréttir Samkomulag í höfn innan bresku ríkisstjórnarinnar um sambandið við ESB Samkomulagið felur það í sér að samið verður um fríverslun með iðnaðar- og landbúnaðarvörur á milli Bretlands og ESB. 6. júlí 2018 21:58 Spenna innan bresku ríkisstjórnarinnar fyrir Brexit-uppgjör Breska ríkisstjórnin reynir að stilla saman strengi sína varðandi Brexit á fundi utan við London í dag. Jafnvel er búist við afsögnum ráðherra. 6. júlí 2018 12:14 Mest lesið Brosandi þótt aftur sé ekið á flugvél Verzlinga Innlent Börnin eru fundin Innlent Meðhöndlarinn farinn að nudda á Kvíabryggju Innlent Höllurnar taka forystuna en aðeins hársbreidd á milli þeirra og Katrínar Innlent Segir árásirnar í Rafah „hræðileg mistök“ Erlent „Þetta er bara eins og að finna gull“ Innlent Taldir hafa sviðsett árekstur í Hafnarfirði Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Dúxaði í Verzló með tíu í einkunn og ári á undan í skóla Innlent Andrea Kristín enn dæmd í fangelsi Innlent Fleiri fréttir Segir árásirnar í Rafah „hræðileg mistök“ Segja Frakka ætla að senda hermenn til Úkraínu Sautján ára „hermaður Hitlers” dæmdur í sjö ára fangelsi Töldu að enginn ætti að deyja í árásunum AfD náði ekki að sigra eftir hrinu hneykslismála Óttast að um 2.000 hafi látist í aurskriðum á föstudag Alríkislögreglan aðstoðar við leit að munum úr British Museum Átján látnir eftir mikið óveður í miðríkjum Bandaríkjanna Hart sótt að Sunak vegna hugmynda um herþjónustu fyrir 18 ára Hryllingur í Rafah eftir hefndaraðgerðir Átta á sjúkrahúsi eftir mikla ókyrrð 700 talin af vegna aurskriðu í Papúa Nýju-Gíneu Hamas skaut eldflaugum í átt að Tel Aviv Flytja hjálpargögn til Gasa í gegnum Kerem Shalom Tólf látin og tugir særð eftir árás á byggingavöruverslun Fjölda saknað eftir loftárás á byggingavöruverslun Halda áfram árásum á Rafah Hafnaði beiðni Baldwin um frávísun „Við munum vinna þennan slag“ Vilja banna snjallsíma fyrir yngri en 16 ára Segja Pútín vilja vopnahlé sem miðist við núverandi víglínur Sá sem át ekkert nema McDonalds í mánuð er fallinn frá Ísrael eigi að láta af öllum hernaðaraðgerðum í Rafah „Þetta setti af stað dómínó-áhrif út um allan heim“ Óttast um afdrif ríflega hundrað eftir aurskriðu Allsherjarsigur gegn Hamas ólíklegur Segir yfirlýsingar um að FBI hafi mátt skjóta Trump stórhættulegar Segir samstöðu lykilinn að jarðgangagerð Færeyinga Fjórir látnir eftir að bygging hrundi á Majorku Munu þurfa að afplána í Kósovó Sjá meira
Samkomulag í höfn innan bresku ríkisstjórnarinnar um sambandið við ESB Samkomulagið felur það í sér að samið verður um fríverslun með iðnaðar- og landbúnaðarvörur á milli Bretlands og ESB. 6. júlí 2018 21:58
Spenna innan bresku ríkisstjórnarinnar fyrir Brexit-uppgjör Breska ríkisstjórnin reynir að stilla saman strengi sína varðandi Brexit á fundi utan við London í dag. Jafnvel er búist við afsögnum ráðherra. 6. júlí 2018 12:14