Körfubolti

Grindavík nær í tvo úr fyrstu deildinni

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Leikmennirnir við undirskriftina
Leikmennirnir við undirskriftina Körfuknattleiksdeild Grindavíkur
Grindvíkingar eru byrjaðir að safna liði fyrir Dominos-deild karla á næsta ári en tveir nýir leikmenn gengu til liðs við félagið á dögunum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá körfuknattleiksdeild Grindavíkur.

Hlynur Hreinsson skrifaði undir eins árs samning um að spila með liðinu en hann kemur frá FSu þar sem hann hefur verið lykilmaður undanfarin ár að því er segir í tilkynningunni.

Þá hefur Grindvíkingurinn Nökkvi Harðarson ákveðið að snúa aftur til Grindavíkur eftir dvöl hjá Vestra þar sem hann var meðal annars fyrirliði liðsins á síðasta tímabili.

Þeir Kristófer Breki Gylfason og Hilmir Kristjánsson framlengdu sína samninga við liðið en þeir hafa verið hluti af leikmannahópi Grindavíkur undanfarin ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×