Fótbolti

Helgi: Ekkert í leik Argentínu sem kom á óvart

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Helgi og Heimir einbeittir fyrir leik í dag
Helgi og Heimir einbeittir fyrir leik í dag Vísir/getty
Ísland náði í stig í fyrsta leik sínum á HM þegar liðið gerði 1-1 jafntefli við Argentínu. Helgi Kolviðsson, aðstorðarlandsliðsþjálfari, sagði ekkert í leik Argentínumanna koma á óvart.

Starfslið landsliðsins er búið að liggja yfir myndböndum af Argentínumönnum og voru undirbúnir undir allt sem gerðist í leiknum.

„Við erum búnir að hræra í þessu alla daga og það var ekkert sem kom okkur á óvart. Við vorum vel undirbúnir og getum sýnt strákunum mikið sem þeir [Argentínumenn] reyndu að gera en gátu ekki gert í leiknum en hafa gert undanfarið,“ sagði Helgi í viðtali við Tómas Þór Þórðarson úti í Moskvu.

„Bara í gær vorum við að skoða trikk frá Messi fyrir utan teiginn, við sýndum strákunum það í morgun og náðum að setja Alfreð á það. Allur þessi undirbúningur gekk upp.“

En hvernig er stemmingin í klefanum eftir þessi frábæru úrslit?

„Það eru bara rólegheit og menn eru yfirvegaðir. Frábært að ná þessum árangri en við erum meðvitaðir um það að þetta er bara fyrsti leikurinn.“

„Menn eru gjörsamlega búnir á því eftir leikinn og reyna að ná sér.“

Strákarnir voru mjög jarðbundnir eftir leikinn og rólegir í fögnuði sínum með íslensku stuðningsmönnunum. Helgi sagði það þó ekki vera eitthvað sem þjálfarateymið hafi lagt upp með.

„Við erum búnir að leggja gríðarlega vinnu í þetta og vissum að þetta yrði erfitt. Við vorum ekkert að hlaupa húllum hæ, náðum í stig á HM í fyrsta leik sem er frábært en núna þarf bara að einbeita sér að næsta leik.“

Jóhann Berg Guðmundsson fór meiddur af velli í seinni hálfleik eftir að hafa fallið til jarðar einn og óáreittur. Það veit oft ekki á gott ef menn meiðast án þess að lenda í samstuði en Helgi gat ekki sagt til um alvarleika meiðslanna að svo stöddu.

„Hann stífnaði upp ekki í neinni tæklingu svo við þurfum aðeins að skoða þetta. Kemur í ljós eftir tvo daga hvort þetta sé eitthvað sem hafi bara stífnað upp eða eitthvað meira. Við vonum það besta,“ sagði Helgi en Heimir Hallgrímsson staðfesti á blaðamannafundi eftir leikinn að Jóhann væri tognaður í kálfa.

Ísland mætir Nígeríu í öðrum leik sínum þann 22. júní.


Tengdar fréttir

Einkunnir Íslands: Hannes fær 10 og var maður leiksins

Hannes Þór Halldórsson, markvörður íslenska landsliðsins, var maður leiksins að mati Vísis þegar Ísland gerði 1-1 jafntefli á móti Argentínu í fyrsta leik sínum á heimsmeistaramótinu í fótbolta í Rússlandi.

Alfreð: Augnablikið var draumi líkast

Alfreð Finnbogason var að vonum ánægður eftir jafntefli Íslands gegn Argentínu í fyrsta leik Íslands á HM en Alfreð skoraði mark Íslendinga í leiknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×