Fótbolti

Hörður um vítið: Var rólegur því það var komið að Nesa að bjarga okkur

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Hörður í  baráttunni við Lionel Messi í dag
Hörður í baráttunni við Lionel Messi í dag Vísir/getty
Hörður Björgvin Magnússon hefði getað orðið skúrkur dagsins þegar hann fékk dæmda á sig vítapsyrnu í seinni hálfleik leiks Íslands og Argentínu í fyrsta leik á HM. Hannes Þór Halldórsson bjargaði honum þó fyrir horn með því að verja vítið frá Lionel Messi.

„Hann átti þetta inni hjá mér grey karlinn,“ sagði Hörður Björgvin um Hannes og hlær í viðtali við Tómas Þór Þórðarson í Moskvu eftir leikinn.

„Kantmaðurinn gerir þetta vel og hleypur í hlaupalínuna mína og auðvitað dettur hann inn í teig, en boltinn var mjög langt frá þessu atviki. Ég var mjög yfirvegaður út og sá að það var komið að Nesa að taka af skarið og bjarga þessu fyrir okkur.“

„Sterkur varnarleikur okkar skilaði góðu stigi. Heppnir en við vissum allan tímann að Hannes myndi taka vítið.“

„Skellurinn fór í burtu þegar Hannes tók þetta,“ sagði Hörður aðspurður hvernig það hafi verið að horfa á heiminn sem mögulegur skúrkur. „Auðvitað er leiðinlegt þegar svona atvik gerast, hvað þá þegar maður er nýkominn í liðið og standa sig vel. Svona gerist í fótboltanum en maður þarf að halda áfram og standa uppréttur.“

En hvernig er tilfinningin í klefanum eftir leikinn?

„Upplifunin er geðveik. Ég held að menn átti sig ekki á því að við gerðum jafntefli við Argentínu. Stórt afrek í knattspyrnusögunni að hafa náð því.“

Spennustigið var mikið hjá flest öllum stuðningsmönnum Íslands í allan dag. En hvernig gekk Herði að stilla spennustigið?

„Maður er enn ekki búinn að átta sig á því hvað þetta er stórt svið fyrir fótboltamanna að fá að spila á.“

„Draumur að fá að spila á móti einu besta landsliði heims. Við náum að læsa á Messi, hann átti tólf skot en ekkert sem var að fara inn frá honum,“ sagði Hörður Björgvin Magnússon.


Tengdar fréttir

24 ár síðan að HM-nýliðar náðu að skora svona snemma

Íslenska fótboltalandsliðið skoraði sitt fyrsta mark á HM eftir rétt tæplega 23 mínútur í leik sínum á móti Argentínu. Það þarf að fara næstum því aldarfjórðung aftur í tímann til að finna slíka byrjun hjá nýliðum á heimsmeistaramóti karla.

Einkunnir Íslands: Hannes fær 10 og var maður leiksins

Hannes Þór Halldórsson, markvörður íslenska landsliðsins, var maður leiksins að mati Vísis þegar Ísland gerði 1-1 jafntefli á móti Argentínu í fyrsta leik sínum á heimsmeistaramótinu í fótbolta í Rússlandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×