Fótbolti

Gylfi: Man ekki eftir neinu dauðafæri frá þeim

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Gylfi Þór í leiknum í dag
Gylfi Þór í leiknum í dag vísir/vilhelm
Ísland náði í stig gegn Argentínu í fyrsta leik sínum á HM í fótbolta. Gylfi Þór Sigurðsson var að vonum ánægður í leikslok en fannst liðið geta gert betur í sóknarleiknum.

„Frábær tilfinning. Auðvitað mjög erfiður leikur, mikið um varnarhlaup og færslur, en mjög jákvæð úrslit. Varnarleikurinn frábær, man ekki eftir neinu dauðafæri sem þeir sköpuðu sér. Auðvitað áttu þeir mikið af skotum og hálffærum, frábært mark hjá þeim, en á móti þessum leikmönnum held ég að við höfum varist vel sem lið,“ sagði Gylfi í viðtali við Tómas Þór Þórðarson í Moskvu eftir leikinn.

Íslenska liðið var nær allan leikinn í vörn, eins og við var að búast á móti jafn sterkum andstæðingi. Gylfi gat ekki tekið undir það að varnarleikurinn yrði skemmtilegri þegar hann tækist eins vel upp og raun bar vitni.

„Ég myndi vilja spila meiri sóknarbolta, ég held við myndum allir vilja það. En við vitum að þetta getur náð í góð úrslit og þetta er okkar besti möguleiki í að ná í sterk úrslit.“

„Við erum mjög góðir í föstum leikatriðum og mjög góðir í skyndisóknum. Sérstaklega á móti svona þjóðum þá vitum við að við þurfum að verjast vel.“

Gylfi setti þessi úrslit á sama stall og jafnteflið í fyrsta leik á EM 2016 gegn Portúgal þar sem úrslitin urðu þau sömu, 1-1.

„Erum mjög ánægðir en þetta er bara eitt stig.“

„Við erum gríðarlega sáttir, sérstaklega miðað við hvernig leikurinn spilaðist. Ég held að við höfum allir verið ánægðir með hvernig við vörðumst en við getum spilað betri sóknarleik.“

„Þetta er gríðarlega erfitt og við erum í nauðvörn 70 prósent af leiknum og hin 30 prósentin erum við í venjulegri vörn.“

Þegar íslenska liðið komst í sókn mynduðust oft miklar hættur og sýndu þeir að þeir eru hættulegir fram á við.

„Fyrstu 30-35 vorum við mjög góðir, náðum að pressa og setja smá spurningamerki við vörnina hjá þeim, en þetta var allt öðruvísi í seinni hálfleik.“

„Markmiðið var að ná í stig hérna í kvöld svo við erum bara í fínum málum,“ sagði Gylfi Þór Sigurðsson.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×