Fótbolti

Ísland með flesta fulltrúa í HM-liði lesenda BBC

Einar Sigurvinsson skrifar
Hannes Þór Halldórsson fékk þriðju hæstu einkunn allra leikmanna HM til þessa hjá lesendum BBC.
Hannes Þór Halldórsson fékk þriðju hæstu einkunn allra leikmanna HM til þessa hjá lesendum BBC. Vísir/Getty
Íslenska landsliðið er með fjóra fulltrúa í besta liði HM til þessa, samkvæmt einkunnum lesenda BBC eftir að öll lið keppninnar höfðu leikið einn leik.

Íslenska liðið hlaut yfirburðarkosningu en engin önnur þjóð fékk fleiri en einn leikmann kjörinn, á meðan Hannes Þór Halldórsson, Ragnar Sigurðsson, Gylfi Sigurðsson og Alfreð Finnbogason komast allir í liðið.

Efstur í einkunnargjöf BBC er mexíkóski framherjinn Hirving Lozano með 8,35 í einkunn. Næstur á eftir honum kemur Isco, miðjumaður Spánar með 8,33. Í 3. sæti er síðan okkar maður, Hannes Þór Halldórsson, með 8,26 í einkunn. Í 4. sætinu kemur síðan Cristiano Ronaldo með 8,13 og rétt á hæla hans í 5. sætinu er Alfreð Finnbogason með 8,02 í einkunn.

Besta lið HM til þessa samkvæmt lesendum BBC:

Markvörður: Hannes Þór Halldórsson (Ísland)

Varnarmenn: Ragnar Sigurðsson (Ísland), Aleksandar Kolarov (Serbía) og Diego Godin (Úrúgvæ).

Miðjumenn: Gylfi Sigurðsson (Ísland), Isco (Spánn), Idrissa Gueye (Senegal) og Shinji Kagawa (Japan).

Framherjar: Alfreð Finnbogason (Ísland), Cristiano Ronaldo (Portúgal) og Hirving Lozano (Mexíkó).




Fleiri fréttir

Sjá meira


×