Enski boltinn

Fred á leið í læknisskoðun hjá United

Dagur Lárusson skrifar
Fred í baráttunni.
Fred í baráttunni. vísir/getty
Brasilíski landsliðsmaðurinn og leikmaður Shaktar Donetsk, Fred, er sagður vera á leið í læknisskoðun hjá Manchester United samkvæmt Sky.

 

Fred hefur verið eftirsóttur í sumar en lið á borð við Manchester United og Manchester City hafa bæði verið á eftir honum en nú virðist sem svo að þeir rauðklæddu í Manchesterborg hafi unnið bardagann.

 

Manchester United á að hafa boðið 43 milljónir punda í leikmaninn sem Shakhtar á að hafa samþykkt.

 

Sky telur að Fred muni ganga undir læknisskoðun á morgun og að lokum ljúka félagsskiptum sínum til United áður en hann heldur til Rússlands með Brasilíu.

 


Tengdar fréttir

Man. Utd á eftir Fred

Jose Mourinho, stjóri Man. Utd, er þegar byrjaður að leita að leikmönnum til þess að styrkja sitt lið fyrir átökin næsta vetur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×