Íslenski boltinn

Hver stóð sig best í Pepsi-deild kvenna í maí?: Þú átt valið

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Bestu leikmenn Pepsi deildar kvenna í maí.
Bestu leikmenn Pepsi deildar kvenna í maí. S2 Sport
Pepsimörk kvenna hafa tekið saman tilnefningar fyrir maímánuð yfir þá leikmenn sem stóðu sig best í deildinni í síðasta mánuði.

Stöð 2 Sport hefur fjallað ítarlega um fyrstu fimm umferðir deildarinnar með Helenu Ólafsdóttur og félögum í Pepsimörkunum og nú er komið að fyrsta uppgjöri sumarsins.

Lesendur Vísis fá nú tækifæri til að kjósa besta leikmanninn og besta markið í maímánuði.

Þær þrjár sem eru tilnefndar sem besti leikmaður mánaðrins eru Berglind Björg Þorvalsdóttir, sóknarmaður Breiðabliks, Björk Björnsdóttir, markvörður HK/Víkings og Ariana Catrina Calderon, miðjumaður Þór/KA.

Mörkin fimm sem eru tilnefnd sem flottasta mark maímánaðar skoruðu Blikinn Agla María Albertsdóttir, Selfyssingurinn Sophie Maierhofer, Valskonan Ásdís Karen Halldórsdóttir, Blikinn Selma Sól Magnúsdóttir og Sandra Stephany Mayor hjá Þór/KA.

Besti leikmaður í Pepsi deild kvenna í maí
Flottustu mörkin í Pepsi deild kvenna í maí
Þú átt núna valið



Fleiri fréttir

Sjá meira


×