Fótbolti

Íslendingarnir í Halmstad gerðu jafntefli

Einar Sigurvinsson skrifar
Höskuldur Gunnlaugsson lék með Breiðablik áður en hann samdi við Halmstad í Svíþjóð.
Höskuldur Gunnlaugsson lék með Breiðablik áður en hann samdi við Halmstad í Svíþjóð. vísir/andri marinó
Íslendingaliðið Halmstad gerði jafntefli við IK Frej Täby í sænsku 1. deildinni í knattspyrnu í dag. Leikurinn fór fram í Halmstad og lauk 2-2.

Þeir Höskuldur Gunnlaugsson og Tryggvi Hrafn Haraldsson léku allan leikinn í liði Halmstad.

Mattias Bouvin kom IK Frej Täby yfir eftir háltíma leik og Dusan Jajic kom liðinu í 2-0 á 68. mínútu.

Aðeins fjórum mínútum síðar minnkaði Marcus Mathisen muninn fyrir Halmstad. Það var síðan Kosuke Kinoshita sem bjargaði stiginu fyrir Halmstad á 83. mínútu.

Lokatölur 2-2 en Halmstad situr í 5. sæti deildarinnar með 21 stig. IK Frej Täby er í 15. sæti með 9 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×