Golf

Þessar eru líklegar til afreka á US Open

Þorsteinn Hallgrímsson skrifar
Lexi Thompson er alltaf líkleg til afreka.
Lexi Thompson er alltaf líkleg til afreka. vísir/getty
Þar sem US Open hjá konunum hefst í dag er ekki seinna vænna en að spá í hvaða kylfingar eru líklegastir til að berjast um sigurinn.  Hér kemur upptalning á nokkrum kylfingum.

Shansan Feng frá Kína er efst á heimslistanum og endaði í fimmta sæti árið 2017 á US Womens Open. Ariya Jutanugarn frá Thailandi hefur leikið vel það sem af er tímabili og er í áttunda sæti heimslistans.

Lydia Ko frá Nýja Sjálandi hefur sigrað á 19 mótum þó hún sé aðeins 21.árs gömul, hún sat í efsta sæti heimslistans í 130 vikur. Sung Hyun Park frá Suður Kóreu er ríkjandi US Womens Open meistari, það kæmi mér mikið á óvart ef að hún verður ekki á topp 5.

So Yeon Ryu frá Suður Kóreu sigraði á US Womens Open árið 2011 og var á tímabili árið 2017 efst á heimslistanum.

Lexi Thompson frá Bandaríkjunum án nokkurs vafa vinsælasti leikmaður mótsins, henni hefur að vísu ekki gengið vel á þessu móti, hennar besti árangur er sjöunda sæti árið 2014 en það er erfitt að veðja á móti Lexi þar sem hún er einn besti kylfingur heims um þessar mundir.

Michelle Wie frá Bandaríkjunum sigraði á þessu móti árið 2014. Hann veit hvað þarf til að vinna og hefur hún verið að finna sitt gamla form á ný og er til alls líkleg þessa vikuna.

Aðrir kylfingar sem vert er að fylgjast með eru Inbee Park, Brooke Hendersson, In Gee Chun og sigurvegari í síðustu viku á LPGA mótaröðinni Pernilla Lindberg frá Svíðþjóð.

Það er alveg ljóst að mótið verður skemmtilegt á gríðarlega krefjandi velli þar sem ég reikna með að vinninsskorið á sunnudag verði ekki meira en fimm undir pari ef að það nær því.

Mótið verður í beinni útsendingu á Golfstöðinni alla dagana og hefst útsending klukkan 19.00 í kvöld.


Tengdar fréttir

Ólafía spilar á velli hönnuðum af Nicklaus

Völlurinn Shoal Creek Golf and Country Club er hannaður af Jack Nicklaus og opnaður árið 1977. Völlurinn er hannaður í kringum læk/ána Shoal Creek sem rennur í gegnum völlinn og kemur við sögu á nokkrum brautum vallarins.

Ólafía Þórunn náði að æfa hálfan hring

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, atvinnukylfingur úr GR, lék brautir 10 – 18 á Shoal Creek vellinum í Alabama nú í kvöld en US Womens Open mótið hefst á vellinum í fyrramálið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×