Innlent

Bæjartorg verður til í miðborg Reykjavíkur

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Svona á Bæjartorgið að líta út.
Svona á Bæjartorgið að líta út.
Framkvæmdir við endurgerð Tryggvagötu frá Pósthússtræti að Lækjartorgi hefjast í byrjun næstu viku og verður lokað fyrir umferð um Tryggvagötu á þessum kafla þar til verki lýkur í byrjun október. Bílaumferð verður beint um Geirsgötu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.

Þá munu einnig hefjast framkvæmdir við Steinbryggju, en svo heitir nú sá kafli Pósthússtrætis sem er á milli Tryggvagötu og Geirsgötu. Sú gata hefur verið lokuð bílaumferð vegna framkvæmda á aðliggjandi byggingareit.

Á framkvæmdatíma verður hún að mestu opin fyrir gangandi vegfarendum með einhverjum undantekningum. Inni á byggingarreitnum er einnig að hefjast vinna við frágang nýrra göngugatna sem fengið hafa heitin Kolagata og Tónagata.

Bæjartorg, þar sem Bæjarins bestu hafa verið með söluskýli, verður einnig endurgert samtímis. Bæjarins bestu fá framtíðarstað á Bæjartorgi að framkvæmdum loknum.

Ferðamönnum vísað veginn

Framkvæmdirnar munu óneitanlega hafa áhrif á mannlífið í miðborginni segir í tilkynningu frá borginni. Verða gerðar sérstakar ráðstafanir til að beina gangandi vegfarendum um öruggar gönguleiðir.

Skilti verða sett upp á nokkrum stöðum til að vísa veginn og verða þau einnig á ensku vegna þess mikla fjölda ferðamanna sem er á þessum slóðum.

Safnstæði fyrir hópbifreiðar í Tryggvagötu verður óvirkt meðan á framkvæmdum stendur og upplýst um það á fundi með samtökum ferðaþjónustunnar í maí. Vefsíða með upplýsingum um rútustoppistöðvar í miðborginni hefur verið uppfærð. 



Kalkofnsvegur tekinn í notkun í áföngum

Samhliða þessum framkvæmdum er unnið að lokafrágangi á Kalkofnsvegi og Geirsgötu, en ekki er gert ráð fyrir frekari truflunum á umferð vegna þeirra.

Kalkofnsvegur verður tekinn í notkun í áföngum og í lok vikunnar verður umferð hleypt á nýjan kafla, vestari akrein, frá Sæbraut að Geirsgötu.

Þá verða einnig virkjuð ný umferðarljós á gatnamótum Geirsgötu og Kalkofnsvegar virkjuð í lok vikunnar. Ljósastýring verður stillt til að mæta umferðarflæði um breytt gatnamót.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×