Innlent

SV-stormur fram yfir hádegi og von á næstu lægð á þriðjudag

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Vindaspá Veðurstofu Íslands á hádegi í dag.
Vindaspá Veðurstofu Íslands á hádegi í dag. Skjáskot/veðurstofa
Vegagerðin varar við suðvestan stormi og snörpum hviðum, allt að 40-45 m/s, undir bröttum fjöllum á Norðurlandi frá því seint í nótt og fram yfir hádegi. Einkum er búist við byljóttum vindi á vegum frá Akureyri og út á Ólafsfjörð, einnig í Ljósavatnsskarði og Köldukinn.

Appelsínugul viðvörun veðurstofu er í gildi á Norðurlandi eystra og þá er gul viðvörun í gildi á Faxaflóa, Ströndum og Norðurlandi vestra, Norðurlandi eystra og Miðhálendi.

Í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands segir að í dag dragi smám saman úr vindi sunnan- og vestantil en hvessi norðanlands. Á morgun á svo að gera rólegheitaveður en það mun ekki standa lengi. Strax á þriðjudag er gert ráð fyrir næstu lægð með hvassviðri af suðaustri og rigningu.

Sjá einnig: Veðurspár breyst til hins verra fyrir hvítasunnuhelgina

Þá er þungfært á fjallvegum á Vestfjörðum, krapi á Holtavörðuheiði og Nesjavallaleið og þungfært á Bröttubrekku. Vegagerðin vekur auk þess athygli á því að venjubundinni vetrarþjónustu er lokið og vegfarendur verði því að taka mið af því. Ekkert ferðaveður sé fyrir bifreiðar með aftanívagna vegna hvassvirðis.

Einnig er vakin sérstök athygli á því að akstursbann er á fjölmörgum hálendisvegum og –slóðum sem eru mjög viðkvæmir meðan frost er að fara úr jörð. Talsvert beri á því að ökumenn virði ekki merkingar um lokanir.

Veðurhorfur á landinu næstu daga samkvæmt spá á vef Veðurstofu Íslands:

Á mánudag (annar í hvítasunnu):

Breytileg átt 3-10 m/s. Stöku skúrir eða slydduél og hiti víða 3 til 8 stig.

Á þriðjudag:

Gengur í suðaustan 10-18 m/s með rigningu S- og V-lands, hægari og þurrt á NA-verðu landinu. Hiti 6 til 12 stig, hlýjast norðan heiða.

Á miðvikudag:

Sunnan 5-10 m/s og rigning, en þurrt N- og A-lands. Hlýnandi veður.

Á fimmtudag:

Suðlæg eða breytileg átt og rigning með köflum, síst A-lands. Hiti breytist lítið.

Á föstudag:

Suðvestanátt og skýjað S- og V-lands en bjartviðri annars. Hiti 6 til 13 stig, hlýjast NA-til.

Á laugardag:

Útlit fyrir suðlæga átt með vætu um landið S- og V-vert, en annars þurrt. Milt veður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×