Enski boltinn

Liverpool hættir við æfingaleik vegna Brewster

Dagur Lárusson skrifar
Rhian Brewster.
Rhian Brewster. vísir/getty
Liverpool hefur hætt við æfingaleik gegn þýska liðinu Borussia Mönchengladbach í sumar vegna ungstirnisins Rhian Brewster.

 

Brewster, sem er talinn vera mikið efni, er samningsmbundinn Liverpool en hann er aðeins 18 ára gamall. Liverpool sakar þýska félagið fyrir það að hafa rætt ólöglega við leikmanninn en Gladbach þykir mjög áhugasamt að fá hann í sínar raðir.

 

Liverpool á að hafa skrifað til þýska félagsins að hætta að eltast við leikmaninn og einhverjar sögusagnir hafa verið á kreiki þess efnis að Liverpool ætli sér jafnvel að kæra Gladbach.

 

Umræddur æfingaleikur átti að eiga sér stað þann 7. ágúst á Anfield en nú er ljóst að honum hefur verið aflýst vegna þessa máls. 

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×