Sport

Bein útsending: Hvaða Íslendingar komast á heimsleikana?

Þórhildur Erla Pálsdóttir skrifar
Anníe Mist Þórisdóttir, Katrín Tanja Davíðsdóttir og Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir.
Anníe Mist Þórisdóttir, Katrín Tanja Davíðsdóttir og Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir. Crossfit Games
Síðasti keppnisdagur er farinn af stað á Europe Regionals þar sem flestir Íslendingar keppa. Efstu fimm komast áfram á heimsleikana sem fara fram í Bandaríkjunum í ágúst.

Annie og Sara eru í mjög góðri stöðu en það er spurning með Þuríði Erlu og Björk Óðinsdóttur. Björgvin Karl Guðmundsson sem hefur farið á leikana seinustu ár þarf að standa sig mjög vel í síðustu tveimur viðburðum mótsins til þess að eiga möguleika á að komast á leikana.

Hægt er að fylgjast með keppninni í beinni útsendingu hér að neðan.


Tengdar fréttir

Íslendingar etja kappi um helgina í Berlín

Þeir fimm einstaklingar sem eru stigahæstir eftir sex viðburði sem að keppt er í frá föstudegi fram á sunnudag komast áfram á heimsleikana sem fara fram í ágúst í Bandaríkjunum. Keppt er á nokkrum mismunandi stöðum og keppnin þar sem flestir Íslendingar taka þátt er í Berlín.

Ragnheiður Sara stendur vel eftir fyrsta daginn í Berlín

Keppni hófst í dag á Europe Regionals. Þar geta keppendur tryggt sér keppnisrétt á heimsleikunum sem fara fram í Bandaríkjunum í ágúst. Katrín Tanja keppir á East Regionals sem hefst einnig í dag en hún keppir í Albany í New York fylki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×