Innlent

Sjö rúmum og tveimur ísskápum stolið úr bílskúr

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Málið er til rannsóknar.
Málið er til rannsóknar. Vísir/GVA
Sjö rúmum, tveimur ísskápum og þremur skápum var nýverið stolið úr bílskúr í Keflavík, að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum.

Sá eða þeir sem þar voru að verki höfðu komist inn í bílskúrinn með því að brjóta sér leið í gegnum hurð á honum. Lögregla hefur málið nú til rannsóknar.

Ekki kemur fram í tilkynningu hvenær innbrotið var framið en það var nýlega tilkynnt til lögreglu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×