Erlent

Forseti Palestínu lagður inn á sjúkrahús

Sylvía Hall skrifar
Abbas, sem er 82 ára gamall, hefur verið forseti Palestínu frá árinu 2005.
Abbas, sem er 82 ára gamall, hefur verið forseti Palestínu frá árinu 2005.
Forseti Palestínu, Mahmoud Abbas, hefur verið lagður inn á sjúkrahús í Ramallah í kjölfar aðgerðar á eyra sem hann undirgekkst í vikunni. Þetta er í þriðja skiptið á viku sem forsetinn hefur verið lagður inn á sjúkrahús. Reuters greinir frá.

Forsetinn fór í aðgerð á eyra síðastliðinn þriðjudag og var lagður inn á sjúkrahús aftur í dag eftir að hafa fengið háan hita. Samkvæmt heimildarmönnum Reuters er innlögnin þó ótengd aðgerðinni, en forsetinn hefur einnig verið meðhöndlaður vegna bólgu í brjósti og mun dvelja á sjúkrahúsinu til morguns.

Frelsissamtök Palestínumanna settu á Twitter-síðu sína að forsetinn væri við góða heilsu:




Fleiri fréttir

Sjá meira


×