Fótbolti

Húðflúraði andlit Monk á afturendann

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Garry Monk er stjóri Birmingham City
Garry Monk er stjóri Birmingham City vísir/getty
Stuðningsmaður breska liðsins Birmingham City neyddist til þess að láta húðflúra mynd af núverandi knattspyrnustjóra liðsins, Garry Monk, á afturendan á sér.

Kevin Tomlinson sagði að hann myndi láta húðflúra andlit Monk á sig ef Monk næði að bjarga Birmingham frá falli úr ensku 1. deildinni á lokadegi deildarinnar þar sem Birmingham átti leik gegn Fulham, liði sem var á leið í umspil um sæti í úrvalsdeildinni.

Birmingham vann leikinn 3-1 og Tomlinson stóð við stóru orðin. Hann stofnaði söfnunarsíðu þar sem hann bað um framlög til þess að borga fyrir húðflúrið og lagði Monk sjálfur til 80 af þeim 100 pundum sem Tomlinson þurfti.

Tomlinson setti mynd af húðflúrinu á Twitter og svaraði Monk því. „Vel gert Kevin. Nú verð ég alltaf með þér til að minna þig á að hugsa áður en þú talar,“ sagði Monk á Twitter.

Í samtali við staðarmiðilinn Birmingham Mail sagði Tomlinson að „það er gott við erum með myndarlegan stjóra, ímyndaðu þér ef þetta hefði verið Harry Redknapp.“



 








Fleiri fréttir

Sjá meira


×