Erlent

Bjargvætturinn í Dixon hylltur

Andri Eysteinsson skrifar
Lögreglumaðurinn Mark Dallas smellti í sjálfu með útskriftarárgangnum.
Lögreglumaðurinn Mark Dallas smellti í sjálfu með útskriftarárgangnum. Twitter/Mark Dallas
Lögreglumaðurinn Mark Dallas var í dag hylltur á útskriftaraathöfn Dixon framhaldsskólans í Dixon í Illinois-ríki í Bandaríkjunum.

Dallas leiddi útskriftarnemana inn í salinn og hlaut eftir það dynjandi lófatak. Josh Dallas, sonur hetjunnar og nemandi við Dixon framhaldsskólann sagði í samtali við staðarblaðið að faðir hans hefði tekið allan skólann undir sinn verndarvæng og hann sé bjargvættur og verndari allra í skólanum. Mynd af feðgunum á útskriftardaginn má sjá í tísti neðst í fréttinni.

Dallas stöðvaði á miðvikudaginn byssumanninn Matthew Milby sem skotið hafði að útskriftarnemum þegar þeir söfnuðust saman til æfinga fyrir útskriftarathöfnina.

Milby sem er nemandi við skólann hefur verið útskrifaður af sjúkrahúsi og færður í vörslu lögreglunnar.

 


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×