Fótbolti

Messi mættur til æfinga hjá Argentínu | Myndband

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Messi fagnar hér spænska meistaratitlinum á sunnudag. Í dag er hann mættur til Argentínu.
Messi fagnar hér spænska meistaratitlinum á sunnudag. Í dag er hann mættur til Argentínu. vísir/getty
Þrátt fyrir langt og strangt tímabil ætlar Lionel Messi ekki að taka sér neitt frí áður en hann fer að æfa með argentínska landsliðinu fyrir HM.

Hann spilaði sinn síðasta leik á tímabilinu með Barcelona á sunnudag og í morgun var hann mættur í höfuðstöðvar argentínska knattspyrnusambandsins eins og sjá má hér að neðan.





Flestir leikmenn taka sér um tíu daga frí áður en þeir fara að æfa fyrir HM en Messi er enginn venjulegur maður eins og fólk veit.

Hann er greinilega ferskur og getur ekki beðið eftir leiknum gegn Íslandi þann 16. júní. Messi er orðinn þrítugur og hann ætti því að toppa á þessu HM. Hann á enn eftir að lyfta bikarnum á HM og mun leggja allt í sölurnar í Rússlandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×