Fótbolti

Kveiktu í liðsrútunni meðan leikmenn voru um borð | Myndband

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Svona var stemningin á lokaleik Rauðu stjörnunnar þar sem þeir höfðu betur gegn erkifjendunum í Partizan.
Svona var stemningin á lokaleik Rauðu stjörnunnar þar sem þeir höfðu betur gegn erkifjendunum í Partizan. vísir/getty
Það gekk ekki áfallalaust hjá Rauðu stjörnunni að fagna meistaratitli sínum í Serbíu um helgina.

Eins og tíðkast víða um heim fóru leikmenn liðsins á opinni rútu um borgina þar sem stuðningsmenn fögnuðu með þeim.

Þeir hata ekki blysin í Serbíu og fjölmargir voru með blys í skrúðgöngunni. Það endaði ekki betur en svo að það kviknaði í rútunni sem síðan brann til kaldra kola.

Allir leikmenn komust frá borði og enginn slasaðist. Þessi uppákoma drap ekki gleðina og var gangan kláruð á fótunum og síðan skemmtu menn sér fram á morgun.

Myndband af þessu má sjá hér að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×