Viðskipti erlent

Virtir þýskir hagfræðingar leggjast gegn tillögum um endurbætur á evrunni

Þorbjörn Þórðarson skrifar
Emmanuel Macron forseti Frakklands hefur sett fram metnaðarfulla framtíðarsýn fyrir myntsamstarfið um evruna. Hugmyndir hans hafa fallið í grýttan jarðveg í Þýskalandi og víðar.
Emmanuel Macron forseti Frakklands hefur sett fram metnaðarfulla framtíðarsýn fyrir myntsamstarfið um evruna. Hugmyndir hans hafa fallið í grýttan jarðveg í Þýskalandi og víðar. Vísir/Getty
Alls 154 þýskir hagfræðingar, margir hverjir mjög virtir, leggjast gegn tillögum Emmanuel Macron Frakklandsforseta um breytingar á myntsamstarfinu um evruna í grein sem birtist í Frankfurter Allgemeine Zeitung í dag.

Í greininni gagnrýna þeir hugmyndir Frakklandsforseta um aukna efnahagslega samþættingu ríkjanna sem nota evruna og kalla eftir úrræðum fyrir ríki að segja sig úr myntsamstarfinu og hætta í evrunni. Macron hefur meðal annars kallað eftir sameiginlegum tryggingarsjóði innistæðueigenda á evrusvæðinu. Jean-Claude Juncker, forseti framkvæmdastjórnar ESB, hefur lýst yfir stuðningi við hugmyndir Macrons. 

Tímasetning greinarinnar er engin tilviljun til stefnt er að því að ná samkomulagi um breytingar á myntsamstarfinu á ríkjaráðstefnu í Brussel hinn 28.-29. júní næstkomandi. Hagfræðingarnir segja að leiðtogar ríkjanna í myntsamstarfinu eigi að beina kröftum sínum að því að fá ríkin sem eru í skuldavanda til að ráðast í endurbætur heima fyrir og búa til regluverk svo ógjaldfær ríki geti sagt sig úr evrusamstarfinu. Á meðal höfunda greinarinnar eru Hans Werner Sinn, fyrrverandi forseti Ifo Institute og Jürgen Stark sem sat um tíma í framkvæmdastjórn Seðlabanka Evrópu.

Hagfræðingarnir halda því fram að fyrirhugaður fjárfestingarsjóður fyrir efnahagslegan stöðugleika muni leiða til enn frekari tilfærslu fjármagns og lána til ríkja sem hafi mistekist að ráðast í efnahagslegar endurbætur í fortíðinni. „Það væri rangt að verðlauna misferli og óstjórn,“ segja þeir og benda á að þýska ríkið hafi nú þegar tekið við 900 milljóna evra skuldbindingum frá Seðlabanka Evrópu í gegnum Target2 kerfið sem beri enga vexti. Þeir telja að tillögur Macrons skapi vandamál fyrir íbúa ríkjanna sem nota evruna sem sjáist nú þegar í lægri launum, aðallega hjá ungu fólki.

Þýsk stjórnvöld hafa lýst yfir áhuga á að ná einhvers konar samkomulagi um breytingar á myntsamstarfinu á ríkjaráðstefnunni í Brussel án þess að gefa upp nákvæmlega að hverju sé stefnt. Fram kemur í Financial Times (FT) að embættismenn í Brussel telji að þýsk stjórnvöld, þar á meðal fjármálaráðherrann Olaf Scholz, vilji ráðast í hófstilltar aðgerðir og styðji tillögur sem settar hafi verið fram af Hollendingum og Írum. Í slíkum tillögum sé áhersla lögð á aukna ábyrgð aðildarríkja Evrópska myntbandalagsins að tryggja skynsamlega hagstjórn. Hollendingar hafi lagt ríka áherslu á mjög ströng skilyrði fyrir aukinni efnahagslegri samþættingu aðildarríkjanna. Í FT segir að Hollendingar vilji sjá endurbætur á bankakerfinu á Ítalíu og víðar í álfunni og niðurfærslu lélegra lánasafna í ítalska bankakerfinu.

Þýsk stjórnvöld hafa lagt áherslu á að hugmyndir um sameiginlegan innistæðutryggingarsjóð fyrir ríkin á evrusvæðinu, svokallað EDIS, komi aðeins til greina sem langtímamarkmið og niðurfærsla lána í ítalska banakerfinu og endurskipulagning þess sé algjör frumforsenda þess að slíkar hugmyndir nái fram að ganga. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×