Innlent

Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2

Íslenska nýsköpunarfyrirtækið Nox Medical bar sigur úr býtum í dómsmáli á hendur bandaríska lækningavörufyrirtækinu Natus Neurology í einhverju stærsta og dýrasta máli sem íslenskt félag hefur höfðað. Fjallað verður um málið í fréttum Stöðvar tvö klukkan hálf sjö í kvöld.

Þar sýnum við líka stærstu flugvél í sögu flugfélagsins Ernis, sem kom til landsins í gærkvöldi og fjöllum um nýjar vísbendingar sem sænska lögreglan rannsakar nú vegna morðsins á Olof Palme.

Strax að loknum fréttum hefjast svo kappræður oddvita framboða í Kópavogi í beinni útsendingu á Stöð 2.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×