Fótbolti

Árni skoraði bæði mörk Jönköpings

Anton Ingi Leifsson skrifar
Árni Vilhjálmsson er að komast af stað eftir meiðsli.
Árni Vilhjálmsson er að komast af stað eftir meiðsli. vísir/getty
Árni Vilhjálmsson skoraði bæði mörkin er Jönköpings Södra gerði 2-2 jafntefli við Degerfors í sænsku B-deildinni í knattspyrnu í kvöld.

Sargon Abraham kom Dagerfors yfir en Árni jafnaði á 35. mínútu. Dagerfors komst á ný yfir á 40. mínútu en aftur jafnaði Árni á 51. mínútu. Lokatölur 2-2.

Árni spilaði fyrstu 70 mínútur leiksins en Jönköpings er með ellefu stig í níunda sæti deildarinnar. Árni er að komast af stað á ný eftir meiðsli.

Tryggvi Rafn Haraldsson og Höskuldur Gunnlaugsson voru í byrjunarliði Halmstads sem gerði markalaust jafntefli við Landskrona.

Höskuldur var tekinn af velli á 87. mínútu en Tryggvi kláraði leikinn. Halmstads er í fimmta sæti B-deildarinnar með fjórtán stig.

Guðmundur Þórarinsson og Arnór Sigurðsson voru í byrjunarliði Norrköping sem vann 1-0 sigur á Sundsvall í úrvalsdeildinni.

Arnór var tekinn af velli á 68. mínútu en sigurmarkið kom tíu mínútum síðar. Norrköping er í þriðja sætinu með 22 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×