Bardagamenn og crossfittarar setja upp sundhettur fyrir góðgerðarleik Pétur Marinó Jónsson skrifar 24. maí 2018 06:00
Laugardaginn 26. maí fer fram góðgerðarleikur í sundknattleik (e. Water Polo) á milli Mjölnis og Granda 101 (Crossfit box). Bæði félögin senda frá sér úrvals keppendur úr MMA, brasilísku jiu-jitsu, Crossfit og öðrum þrekmótum. Aðgangseyrir á leikinn er 1000 kr. en öll innkoma rennur beint til Reykjadals en þar rekur Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra sumar- og helgardvalarstað fyrir fötluð börn og ungmenni. Góðgerðarleikurinn er hluti af alþjóðlegu sundknattleiksmóti í Laugardalslauginni. Mótið hefst fimmtudaginn 24. maí og lýkur með úrslitaleik á laugardeginum. Átta lið taka þátt í mótinu og þar af eru sex erlend lið sem koma sérstaklega hingað til lands til að keppa á mótinu. Á mótinu verða samtals 70 keppedur frá 40 mismunandi löndum. Liðsmenn Mjölnis og Granda 101 hafa enga reynslu af sundknattleik en hafa litið við á nokkrar æfingar í undirbúningi fyrir góðgerðarleikinn. Liðsmenn beggja liða eru sammála um að þetta sé gríðarlega erfið íþrótt og ætti leikurinn að vera góð skemmtun fyrir áhorfendur. Sundknattleikur hefur verið stundaður hér á landi um langt skeið en þetta var fyrsta liðsíþróttin sem Ísland keppti í á Ólympíuleikunum (árið 1936). Íþróttin hefur verið sögð ein erfiðasta íþrótt heims og fer vöxtur hennar hér á landi vaxandi. Eins og áður segir er aðgangseyrir 1000 kr. en frjáls framlög eru velkomin. Þeir sem ekki geta komist á leikinn en vilja samt láta gott af sér leiða geta lagt inn á neðangreindan reikning Reykjadals:Kennitala: 630269-0249Reikningsnúmer: 0313-26-006302Dagskrá mótsins:Fimmtudagurinn 24. maí 17:00-21:30 UndankeppniFöstudagurinn 25. maí 19:00 – 20:00 Ármann vs. S.H. (Íslandsmeistaratitill í húfi) 20:00 – 21:30 UndankeppniLaugardagur 26. maí 11:00 – 13:00 Undanúrslit 17:30 – 18:00 Leikur um 3. sæti 18:15 GÓÐGERÐARLEIKUR MJÖLNIR VS. GRANDI 101 19:00 Úrslitaleikur mótsins
Mest lesið Usyk fyrstur til að vinna Fury Sport Var spáð falli en eru á leið í Meistaradeildina Fótbolti Tapið í gær þýðir að Kane missir af enn einum titlinum Fótbolti „Eins og að spila við landslið Þýskalands nasismans“ Sport Telur að Usyk hafi unnið vegna stríðsins í Úkraínu Sport Dagskráin í dag: Sófasunnudagur frá morgni til kvölds Sport Chelsea sækir undrabarn frá Brasilíu Fótbolti Ten Hag segir United í betri stöðu en fyrir ári Enski boltinn Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Enski boltinn Verstappen á ráspól og jafnaði 35 ára gamalt met Formúla 1 Fleiri fréttir Missti af rauðvínsglasi með Sir Alex Mættust síðast í úrslitum fyrir aldarfjórðungi Guðni Valur Norðurlandameistari Klopp segir að Liverpool verði í góðum höndum hjá Slot Telur að Usyk hafi unnið vegna stríðsins í Úkraínu Ten Hag segir United í betri stöðu en fyrir ári Usyk fyrstur til að vinna Fury Dallas komið í úrslit Vestursins Tapið í gær þýðir að Kane missir af enn einum titlinum Chelsea sækir undrabarn frá Brasilíu Dagskráin í dag: Sófasunnudagur frá morgni til kvölds Lowry hástökkvari dagsins og blandar sér í baráttuna Var spáð falli en eru á leið í Meistaradeildina Verstappen á ráspól og jafnaði 35 ára gamalt met Ótrúlegir yfirburðir tryggðu tíunda bikarmeistaratitilinn Stutt gaman hjá Birki er Brescia missti af sæti í efstu deild AC Milan hleypti Torino inn í Evrópubaráttu Uppgjörið,viðtöl og myndir: Valur - Olympiacos 30-26 | Einum leik frá Evróputitli Elvar stigahæstur í grátlegu tapi „Ég á von á því að það verði allt önnur tónlist hjá þeim í Grikklandi“ „Ef við þolum þann þrýsting sem verður í Grikklandi eigum við skilið að verða Evrópumeistarar“ Aníta tryggði sér Norðurlandameistaratitilinn Ómar og Viggó röðuðu inn mörkum í sigrum „Eins og að spila við landslið Þýskalands nasismans“ Bjarki og félagar í úrslit eftir öruggan sigur Keflavík og Grindavík tryggðu sér sæti í átta liða úrslitum Jón Daði og félagar náðu ekki að koma sér upp um deild Hayes kvaddi Chelsea með fimmta titlinum í röð og Dagný komin í hóp Leiknir vann Breiðholtsslaginn og Njarðvík með fullt hús stiga Reus kvaddi með draumamarki og Leverkusen kláraði tímabilið ósigrað Sjá meira