Enski boltinn

Pochettino framlengir við Spurs

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Pochettino líður vel hjá Tottenham.
Pochettino líður vel hjá Tottenham. vísir/getty
Argentínumaðurinn Mauricio Pochettino skrifaði í dag undir nýjan fimm ára samning við Tottenham Hotspur.

Það þýðir að Pochettino mun stýra Spurs til ársins 2023. Þessi 46 ára gamli stjóri kom til félagsins árið 2014 og hefur komið liðinu í topp þrjú í ensku úrvalsdeildinni þrjú ár í röð.

Allir aðstoðarmenn Pochettino hafa einnig gert nýjan samning við Lundúnafélagið.

Spurs flytur á nýjan og endurbættan White Hart Lane eftir að hafa eytt nýliðnum vetri á Wembley.

Þessi skemmtilegi argentínski stjóri hefur þegar stýrt yfir 200 leikjum í ensku úrvalsdeildinni en hann var stjóri Southampton áður en hann fór til Tottenham.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×