Golf

Ólafía fór vel af stað á Volvik Championship

Ísak Jasonarson skrifar
Flottur hringur hjá Ólafíu í dag.
Flottur hringur hjá Ólafíu í dag. vísir/getty
Atvinnukylfingurinn Ólafía Þórunn Kristinsdóttir lék vel á fyrsta hringnum á Volvik Championship mótinu sem hófst í dag á LPGA mótaröðinni.

Ólafía lék á einu höggi undir pari og er jöfn í 34. sæti þegar um helmingur keppenda hefur lokið leik á fyrsta hring.

 

Ólafía lék mjög stöðugt golf á fyrsta hringnum og fékk einungis einn skolla og tvo fugla. Skollinn kom á 16. holu en fuglarnir á 9. og 14. holu.

 

Ólafía er sem fyrr segir í 34. sæti í mótinu en þó á staðan eftir að breytast töluvert í dag þar sem nokkrir kylfingar eiga enn eftir að hefja leik í mótinu.

Efstu kylfingar eru á sex höggum undir pari, fimm höggum á undan Ólafíu.

 

Volvik Championship mótið er 11. mót tímabilsins hjá Ólafíu á mótaröð þeirra bestu. Takist henni að halda sér í einu af 70 efstu sætunum að tveimur hringjum loknum yrði það í fjórða skiptið á tímabilinu sem hún kæmist í gegnum niðurskurðinn.

Besti árangur hennar kom á Bahama-eyjum í janúar þar sem hún endaði í 26. sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×