Fótbolti

Jón Daði áritar á Selfossi á morgun

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Selfyssingurinn Jón Daði heilsar upp á sitt fólk á morgun og kveður um leið fyrir HM.
Selfyssingurinn Jón Daði heilsar upp á sitt fólk á morgun og kveður um leið fyrir HM. vísir/getty
Landsliðsmaðurinn Jón Daði Böðvarsson gleymir ekki sínu heimafólki og hann verður að árita á Selfossi á morgun.

Nánar tiltekið í Nettó á Selfossi klukkan 17.00.

Þá geta ungir jafnt sem aldnir heilsað upp á Selfyssinginn hógværa og fengið áritun.

Jón Daði verður að sjálfsögðu með íslenska landsliðinu á HM í Rússlandi í sumar og verður gaman að fylgjast með Selfyssingnum berjast á stóra sviðinu.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×