Innlent

Ríkið sendir lífeyrisþegum samtals 4 milljarða reikning

Sveinn Arnarsson skrifar
Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður ÖBÍ.
Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður ÖBÍ. Vísir/hanna
Hinn árlegi endurreikningur Tryggingastofnunar ríkisins kemur afar illa niður á tæpum helmingi skjólstæðinga stofnunarinnar. Þeir sem eru á lífeyri hjá TR þurfa að greiða samanlagt 3,9 milljarða króna til baka til stofnunarinnar. Öryrkjabandalagið gagnrýnir harðlega vinnulag Tryggingastofnunar.

Lífeyrisréttindi eru tekjutengd og voru réttindi fyrir árið 2017 reiknuð út frá áætluðum árstekjum í tekjuáætlunum sem lífeyrisþegar bera ábyrgð á. Þegar endanlegar upplýsingar um tekjur ársins lágu fyrir í staðfestum skattframtölum voru lífeyrisréttindi endurreiknuð á grundvelli þeirra. Lífeyrisþegar sem fengu greitt umfram rétt sinn eru þá í skuld við stofnunina sem kemur til innheimtu þann 1. september næstkomandi.

Alls fengu 44 prósent lífeyrisþega ofgreitt og sama hlutfall fékk of lítið greitt. Einungis tólf prósent lífeyrisþega fengu réttar greiðslur frá stofnuninni. Þeir einstaklingar sem fengu ofgreitt frá stofnuninni þurfa að greiða til baka að meðaltali um 13.000 krónur á mánuði.

„Þessi hópur er með lægstu tekjur allra í dag og því eru þetta gríðarlega háar fjárhæðir fyrir þetta fólk,“ segir Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður ÖBÍ.

„Það liggur við að segja að verið sé að gefa skotleyfi á líf­eyris­þega hvað þetta varðar. Við höfum alltaf viljað að þetta yrði reiknað mánaðarlega til að koma í veg fyrir svona mistök.“

Þeir einstaklingar sem fengu vangreiddan lífeyri fá endurgreidda um 2,6 milljarða króna um næstu mánaðamót.

Bergur Þorri Benjamínsson, formaður Sjálfsbjargar, segir mikilvægt einmitt að barist sé fyrir því að réttur til lífeyris hjá TR verði reiknaður mánaðarlega. „Við þurfum að eiga samtalið við ráðherra til að fá þessu breytt. Það er krafa okkar að réttur okkar sé reiknaður í hverjum mánuði en einmitt þannig minnkum við bakreikninga sem eru afar erfiðir fyrir okkar skjólstæðinga,“ segir Bergur Þorri.

Lífeyrisþegum hjá TR hefur fjölgað mikið síðustu ár og hefur heildarfjárhæð lífeyris hækkað sem því nemur. Lífeyrisþegar TR geta sótt um niðurfellingu á skuld sinni en ströng skilyrði þarf að uppfylla til að sleppa undan henni.




Tengdar fréttir

Systkini endurgreiði ofgreiddan lífeyri föður

Litlar tekjur þóttu ekki fullnægjandi rök systkina til að fá kröfu TR í dánarbú föður þeirra fellda niður. Faðir þeirra hafði ekki gert grein fyrir tekjum úr líf­eyrissjóði og séreignarsparnaði. Formaður ÖBÍ telur kerfið vera ömurlegt.

Þarf að endurgreiða lífeyri látinnar konu

Ekkill þarf að endurgreiða ofgreiddan lífeyri sem kona hans fékk. Ofgreiðslan varð til við sölu á húsi hjónanna vegna veikinda hennar. Ótrúlegt óréttlæti að mati varaformanns LEB.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×