Erlent

Vegfarendur skutu vopnaðan mann til bana

Samúel Karl Ólason skrifar
Frá veitingahúsinu í Oklahoma.
Frá veitingahúsinu í Oklahoma. Vísir/AP
Lögreglan í Oklahoma hefur lofað tvo menn sem skutu árásarmann til bana á fimmtudaginn. Hinn 28 ára gamli Alexander Tilghman er sagður hafa skotið að gestum veitingastaðar í Oklahoma-borg en tveir menn, sem þekktu ekki hvorn annan, náðu í skotvopn í bíla sína og skutu Tilghman til bana, sem þá hafði skotið þrjá einstaklinga. Að Tilghman undanskildum lét enginn lífið í atvikinu.

Þeir Juan Carlos Nazario og Bryan Wittle eru sagðir hafa brugðist rétt við og hefur þeim verið hrósað fyrir að koma mögulega í veg fyrir fjölda dauðsfalla.

Lögreglustjórinn Bo Mathews segir að Tilghman virðist hafa valið veitingastaðinn af handahófi og hann hafi ekki þekkt neinn þar. Þá hafi hann skotið inn um dyr veitingastaðarins og hann hafi ekki komist þar inn. Mathews segir að líklega hefði farið mun verr ef Tilghman hefði farið þar inn. Um hundrað manns voru inn í veitingahúsinu.

FOX 25 News segir Tilghman hafa reglulega birt myndbönd á Youtube þar sem hann kvartaði yfir árásum djöfla. Hann hafi kvartað undan andsetnum íkorna og jafnvel ísskáp. Í síðasta myndbandi sínu, sem birt var fyrir nokkrum vikum, sagðist Tilghman vera undir harðri árás djöfla og hann þyrfti nauðsynlega á raunverulegu fólki að halda. Hann bað fólk um að setja sig í samband við hann.

Tilghman virðist hafa talið flesta, ef ekki alla, í kringum sig vera andsetin klón og að hann væri einn af fáum raunverulegum manneskjum í heiminum. Lögreglan hafði einungis einu sinni haft afskipti af honum og var það árið 2003 þegar móðir hans sagði hann hafa kýlt sig nokkrum sinnnum vegna deilna um ryksugu. Tilefni árásarinnar liggur ekki fyrir.

BBC bendir á að stærstu samtök byssueigenda Bandaríkjanna, National Rifle Association, hafi hyllt þeim Nazario og Wittle. Samtökin segja atvikið vera „enn eitt dæmið“ um hvernig besta leiðin til að stöðva vondan mann með byssu sé „góður maður með byssu“.

Tilghman var þó með réttindi öryggisvarðar og hafði leyfi til að bera vopn, samkvæmt AP fréttaveitunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×