Handbolti

Þakka fyrir handaboltatímabilið með metnaðarfullu myndbandi

Einar Sigurvinsson skrifar
Eyjamenn lyfta titilinum.
Eyjamenn lyfta titilinum. vísir/andri marinó
„Frábær lið, frábær umgjörð, stórkostlegir áhorfendur og ótrúleg skemmtun. Til hamingju með magnaðan handboltavetur,“ segir Olís, aðalstyrktaraðili Íslandsmótsins í handbolta á Facebook síðu sinni í dag.

Lokahóf HSÍ fór fram í gærkvöldi þar sem bestu leikmenn og þjálfarar Olís-deildar karla og kvenna voru verðlaunaðir. Þar með lokahnúturinn bundinn á handknattleikstímabilið en ÍBV tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn síðasta laugardag eftir baráttu við FH.

Myndband Olís sýnir skemmtilegar svipmyndir úr einvígi ÍBV og FH og má sjá hér fyrir neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×