Innlent

Einn handtekinn grunaður um íkveikju

Þórhildur Erla Pálsdóttir skrifar
Talsverður erill var hjá lögreglu á kosninganótt.
Talsverður erill var hjá lögreglu á kosninganótt. Vísir/VIlhelm
Einn var handtekinn grunaður um íkveikju eftir að tilkynnt var um eld í fjölbýli í Breiðholti um miðnætti. Eldur og skemmdir voru minniháttar og höfðu íbúar hússins slökkt eldinn áður en viðbragðaðilar komu á vettvang. Sá sem var grunaður um íkveikjuna hafði í hótunum við einn íbúa hússins.

Um þrjú leytið barst tilkynning um líkamsárás í miðborginni. Tveir voru grunaðir um að hafa ráðist á einn en þeir fundust ekki og voru meiðsl hins slasaða minniháttar.

Þá voru nokkrir ökumenn stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis- og fíkniefna og einn sviptur ökuréttindum í framhaldinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×