Handbolti

Hákon Daði hættur hjá Haukum

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Hákon Daði í leik með Haukum.
Hákon Daði í leik með Haukum. vísir/anton
Handknattleiksdeild Hauka sendi frá sér tilkynningu í dag um að hornamaðurinn Hákon Daði Styrmisson væri hættur hjá Haukum af persónulegum ástæðum.

Samkvæmt tilkynningunni bað Hákon Daði um riftun á samningnum sem Haukar urðu við. Sérstaklega er tekið fram að báðir aðilar skilji í fullri sátt.

Samkvæmt frétt á heimasíðu Hauka þá er von á tilkynningu um af hverju Hákon Daði sé hættur fljótlega.

Hákon Daði kom eins og stormsveipur inn í Olís-deildina eftir að hann kom til Hauka frá ÍBV. Hann fór strax á kostum og stimplaði sig inn sem einn af bestu hornamönnum deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×