Innlent

Daníel fékk hæstu einkunn í sögu Flensborgar

Daníel tók við verðlaununum við hátíðlega athöfn á laugardaginn.
Daníel tók við verðlaununum við hátíðlega athöfn á laugardaginn. Hildigunnur Guðlaugsdóttir
Óvanalega stór hópur brautskráðist frá Flensborgarskólanum laugardaginn 26. maí. Í hópnum var 121 nemandi en ástæðan var sú að verið var að útskrifa síðasta stóra hópinn sem var í fjögurra ára kerfi og þann fyrsta sem er útskrifaður í þriggja ára kerfi. Það luku 52 nemendur námi á þremur árum.

Það voru nokkrir nemendur sem skáru sig úr í námsárangri. Það eru t.d. níu þeirra með 9,0 í meðaleinkunn eða hærra. Dúx af fjögurra ára braut var Daníel Einar Hauksson, sem lauk stúdentspróf prófi með 9,94 í meðaleinkunn og setti því met í einkunnum. Þetta er hæsta stúdentseinkunn sem gefin hefur verið við skólann. Í þriggja ára kerfinu var Ólafur Andri Davíðsson dúx með 9,89 í meðaleinkunn.

Nýstúdentar frá Flensborg.Heiða Ósk Bjarnadóttir
Kynjahlutfall er þannig að karlar eru 53% en konur 47%

27 nemendur brautskráðust af félagsfræðibrautum, málabraut luku níu nemendur, 32 luku raunvísindabrautum og 13 nemendur viðskipta- og hagfræðibraut. 36 nemendur luku stúdentsprófi af nýrri braut, opinni námsbraut, þar sem nemendur raða saman blandaðri sérhæfingu af eigin vali. Alls luku 33 stúdentar íþróttaafrekssviði sem hluta af stúdentsprófinu. Sex nemendur luku námi af starfsbraut.

Að auki voru tveir nýnemar heiðraðir fyrir námsárangur á fyrsta ári og skiptinemar sem voru við skólann í vetur kvaddir, en þeir voru sex alls.

Útskriftarnemendur fengu fjölda verðlauna frá skólanum en að auki veittu Danska sendiráðið, Embætti Landlæknis, Gámaþjónustan, Góa/Linda, Háskólinn í Reykjavík, Háskóli Íslands, Hið íslenska stærðfræðifélag og Rotary hreyfingin verðlaun fyrir afbragðs námsárangur í ýmsum greinum. 

Útskriftarnemendur gáfu veglega upphæð til Píeta – forvarnarsamtaka gegn sjálfsvígum og sjálfsskaða - í nafni skólans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×