Kanaríveður og hvassviðri Stefán Ó. Jónsson skrifar 29. maí 2018 07:23 Bongó og bleyta einkenna veðrið í dag. Vísir/eyþór
Norðausturhorn landsins mun njóta fádæma veðurblíðu í dag og á morgun ef marka má spákort Veðurstofunnar. Ætla má að hitinn þar kunni að fara yfir 20 stig í dag og jafnvel upp í 22 stig á morgun. Til samanburðar segir á vef Veðurstofunnar að það sé „u.þ.b. hitastigið á Kanaríeyjum þessa dagana.“ Þá verður jafnframt léttskýjað norðaustantil og vindurinn verður hægur. Hið sama er hins vegar ekki upp á teningnum annars staðar á landinu. Nú í morgunsárið liggja skil við vesturströndina og þeim fylgir allhvöss suðaustanátt og rigning um vestanvert landið. Hviður við fjöll geta farið í 30 m/s svo að aðgátar er þörf á flestum vegum milli þéttbýlisstaða að sögn Veðurstofunnar. Seinni partinn fer þó að draga úr vindi. Hitinn verður þó ágætur, á bilinu 8 til 16 stig. Það stefnir svo í mun hægari vind á morgun með lítilsháttar vætu sunnan- og vestanlands, en áfram bjart og hlýtt norðaustantil.Veðurhorfur á landinu næstu dagaÁ miðvikudag:Suðlæg átt 3-10 m/s. Skýjað og smásúld S- og V-lands með hita 8 til 13 stig. Bjartviðri NA-til og hiti 15 til 22 stig.Á fimmtudag:Vestlæg átt 3-8 m/s. Víða skýjað og sums staðar súld við ströndina. Hiti 8 til 18 stig, hlýjast SA-til.Á föstudag:Vestlæg átt, 5-13 m/s, hvassast NV-lands og yfirleitt skýjað, en bjart á köflum um landið austanvert. Hiti breytist lítið.Á laugardag og sunnudag (sjómannadagurinn):Suðvestlæg átt og dálítil væta V-lands, en bjart með köflum A-til. Hiti 8 til 18 stig, hlýjast á austanverðu landinu.Á mánudag:Útlit fyrir hæga suðlæga átt og bjart fyrir norðan, annars úrkomulítið. Hlýnar heldur.
Veður Mest lesið Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Innlent Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Erlent Segir Helgu fara með rangt mál Innlent Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Innlent Gular viðvaranir víðs vegar um landið Veður Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Færeyingar draga í land með ferðamannaskatt Erlent Fleiri fréttir Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Aukin skjálftavirkni og erjur um Erfðagreiningu Örlítil aukning í skjálftavirkni undir Svartsengi Forsetakosningar, mansal og samningar Reykjavíkur við olíufélögin Segir Helgu fara með rangt mál Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Með vopn og fíkniefni í útistöðum við dyravörð Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Sjá meira