Viðskipti innlent

Gengið frá samkomulagi um forkaupsréttinn

Hörður Ægisson og Kristinn Ingi Jónsson skrifar
Ríkisstjórnin á tröppunum á Bessastöðum í nóvember á síðasta ári.
Ríkisstjórnin á tröppunum á Bessastöðum í nóvember á síðasta ári. VÍSIR/ERNIR
Kaupþing og íslensk stjórnvöld hafa gengið frá samkomulagi um að ríkið falli frá forkaupsrétti sínum að hlutabréfum Kaupþings í Arion banka upp að ákveðnum eignarhluta og í tiltekinn tíma þegar ráðist verður í hlutafjárútboð og skráningu bankans, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins.

Samkomulag um endurskoðun á umræddum forkaupsrétti náðist um síðustu helgi. Slíkt samkomulag hefur verið talið nauðsynlegt enda hefur annars verið talin hætta á því að forkaupsrétturinn, sem virkjast að öðrum kosti ef hlutabréf Kaupþings eru seld á genginu 0,8 eða lægra miðað við eigið fé, myndi að óbreyttu draga úr þátttöku fjárfesta í útboðinu. Um leið myndi hann þá aftra því að raunverulegt markaðsverð á bankanum yrði leitt fram.

Ríkið verður hins vegar áfram með forkaupsrétt að þeim hluta sem ekki selst í útboðinu og verður enn í eigu Kaupþings eftir skráningu bankans á markað.

Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins náðist þó ekki samkomulag um að Kaupþingi verði gert að greiða ríkinu mismuninn ef sölugengið í útboðinu á þeim bréfum sem ríkið mun falla frá forkaupsrétti sínum að verður lægra en 0,8. Fulltrúar stjórnvalda og Kaupþings hafa undanfarnar vikur rætt um að eignarhaldsfélagið myndi ábyrgjast slíka greiðslu en ekki náðist sátt um það.

Tilkynningar er að vænta í næstu viku um að formlegt útboðsferli Arion banka sé hafið. Útboðið og í framhaldi tvíhliða skráning bankans á Íslandi og í Svíþjóð mun þá fara fram í fyrri helmingi júnímánaðar.

Samkomulag um endurskoðun á forkaupsréttinum hefur verið á meðal þess sem helst hefur staðið í vegi fyrir útboði bankans. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×