Innlent

Ráðherra óviss um nauðsyn breytinga á meiðyrðalöggjöf

Aðalheiður Ámundadóttir skrifar
Sigríður Á. Andersen dómsmálaráðherra segist ekki viss um að allir séu sammála um nauðsyn þess að breyta löggjöf um meiðyrði þrátt fyrir fjölda dóma gegn Íslandi frá Mannréttindadómstólnum í Strassborg.
Sigríður Á. Andersen dómsmálaráðherra segist ekki viss um að allir séu sammála um nauðsyn þess að breyta löggjöf um meiðyrði þrátt fyrir fjölda dóma gegn Íslandi frá Mannréttindadómstólnum í Strassborg. Vísir/Ernir
Dómsmál Þingsályktunartillögu um endurskoðun löggjafar um ærumeiðingar var vísað til ríkisstjórnarinnar með atkvæðagreiðslu á Alþingi fyrr í vikunni. Markmið endurskoðunarinnar er að ná betur utan um tjáningarfrelsisákvæði Mannréttindasáttmála Evrópu eins og það hefur verið túlkað af Mannréttindadómstólnum.

Á árunum 2012 til 2017 hefur íslenska ríkið verið dæmt sex sinnum af Mannréttindadómstólnum fyrir brot gegn tjáningarfrelsi fjölmiðlamanna sem hlotið höfðu dóma fyrir meiðyrði fyrir íslenskum dómstólum. Í öllum tilvikum reyndi á ákvæði hegningarlaga um aðdróttanir í garð nafngreindrar persónu.

Í dómunum var í raun ekki sett út á lagaákvæðið sjálft heldur beitingu þess fyrir íslenskum dómstólum. Ekki verður hins vegar séð að dómarnir hafi haft áhrif á dómaframkvæmd hér á landi sem veldur því að tjáningarfrelsi blaðamanna er reglulegt umræðuefni í samfélaginu, ekki síst meðal blaðamanna og stjórnmálamanna sem vilja bæta úr.

Þingmál hljóta brautargengi á Alþingi, vinnuhópar og nefndir eru skipaðar, frumvörp verða til. Lögunum hefur þó enn ekki verið breytt og dómaframkvæmd íslenskra dómstóla er sú sama.

„Ég er ekki alveg viss um að það séu allir sammála um hvort það sé einhver þörf á að breyta þessu,“ segir Sigríður Andersen dómsmálaráðherra aðspurð um endurskoðun löggjafarinnar, sem er á hennar málefnasviði. Hún segist munu bíða niðurstöðu nefndar forsætisráðherra og sjá hvað hún leggur til. „Ef niðurstaðan er sú að menn telji að það þurfi að breyta einhverju þá gerum við það auðvitað,“ segir Sigríður en hyggst þó bíða álits refsiréttarnefndar áður en til þess kæmi enda kunni ólík sjónarmið að vera uppi um nauðsyn breytinga.

„Menn hafa stundum verið að misskilja dóma Mannréttindadómstólsins í þessu þannig að það þarf að skoða þetta vel,“ segir ráðherra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×