Enski boltinn

Knattspyrnusambandið kærir Chelsea fyrir ósæmilega hegðun leikmanna

Einar Sigurvinsson skrifar
Leikmenn Chelsea hópast að Lee Mason.
Leikmenn Chelsea hópast að Lee Mason. getty
Enska knattspyrnusambandið hefur kært Chelsea fyrir um hópast að Lee Mason, dómara í leik liðsins gegn Huddersfield í síðustu umferð.

Atvikið átti sér stað í kjölfar þess að Mason flautaði til hálfleiks áður en Chelsea gafst kostur á að taka horspyrnu. Félagið fær fimm daga til að svara kærunni.

Chelsea missti af dýrmætum þremur stigum þegar liðið gerði jafntefli við Hudderfield í síðustu umferð. Liðið þarf því að treysta á að Liverpool tapi fyrir Brighton í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar til þess að eiga möguleika á Meistaradeildarsæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×