Innlent

Kynferðisbrotin í sumarbústað, bíl og heimili barna en mest á heimili fulltrúans

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjaness í dag og neitar stuðningsfulltrúinn sök.
Málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjaness í dag og neitar stuðningsfulltrúinn sök. Vísir/GVA
Stuðningsfulltrúi á fimmtugsaldri sem ákærður er fyrir að nauðgað þremur drengjum og einni stúlku þegar þau voru á aldrinum sjö til fjórtán ára braut aðallega á börnunum á heimili sínu en sömuleiðis á heimili þeirra, í sumarbústað og í bíl. Fórnarlömbin fara samanlagt fram á 13 milljónir króna í miskabætur frá manninum.

Stuðningsfulltrúinn starfaði lengi hjá Barnavernd Reykjavíkur en hefur setið í gæsluvarðhaldi síðan í janúar. Hann var leiddur fyrir dómara í morgun þar sem hann neitaði sök í málinu. Fyrirhugað er að aðalmeðferð í málinu fari fram um mánaðarmótin en þinghald í málinu er lokað.

Auk þeirra fjögurra brotaþola í málinu, sem fulltrúinn er ákærður fyrir að hafa brotið á, eru fleiri meint brot mannsins enn til rannsóknar hjá lögreglu. Þá hafði fulltrínn verið ákærður fyrir kynferðisbrot gegn andlega fötluðum fullorðnum manni en fallið var frá þeim lið ákærunnar.

Trúað fyrir kennslu og uppeldi

Stuðningsfulltrúinn er ákærður fyrir nauðgun og kynferðisbrot gegn dreng frá því hann var sjö ára og þar til hann varð 13 ára gamall. Nýtti fulltrúinn yfirburði sína gagnvart drengnum og traust hans og trúnað sem fjölskylduvinur. Honum hafði verið trúað fyrir kennslu og uppeldi drengsins.

Er fulltrúinn sakaður um að hafa beit hann ofbeldi og sumpart notfært sér ástand hans með því að hafa brotið á drengnum í rúmi fulltrúans þar sem drengurinn gisti á aldrinum 7-13 ára. Sömuleiðis brotið á honum við 12 til 13 ára aldur í bíl á leið í útilegu, í útilegu og á skrifstofu sinni.

Brotaþoli í málinu fer fram á átta milljónir króna í miskabætur vegna málsins.



Átti að gæta stúlkunnar 

Stuðningsfulltrúinn er einnig ákærður fyrir nauðgun og kynferðisbrot í tilfellli stúlku sem gisti í rúmi fulltrúans á heimili hans þegar hún var á aldrinum sjö til tíu ára. 

Tók stuðningsfulltrúinn sér það hlutverk að gæta stúlkunnar fyrir foreldra hennar en hann var fjölskylduvinur. Á hann að hafa notfært sér að hún gat ekki spornað við háttseminni sökum svefndrunga.

Brotaþoli í málinu fer fram á 1,5 milljón króna í miskabætur.



Brot í sumarbústað

Stuðningsfulltrúinn er sömuleiðis ákærður fyrir nauðgun og kynferðisbrot á öðrum dreng frá því sá var sex til 12/13 ára gamall. Hafði honum verið trúað fyrir drengnum til kennslu og uppeldis en hann er sakaður um að hafa brotið á piltinum í fjölda skipta á heimili fultrúans, sömuleiðis einu sinni á heimili drengsins og einnig í sumarhúsi.

Fer pilturinn fram á þrjár milljónir króna í miskabætur.

Þá er fulltrúinn sakaður um nauðgun og kynferðisbrot gegn fjórða drengnum þegar hann var 13 eða 14 ára gamall. Gisti hann í rúmi fulltrúans sem er sakaður um að hafa beitt ólögmætri nauðung, sem fólst í aldurs-, þroska- og aðstöðumun og yfirburðum fulltrúans gagnvart piltinum sem átti traust hans og trúnað.

Fer pilturinn fram á 1,5 milljón króna í miskabætur.


Tengdar fréttir



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×