Lífið

Júrógarðurinn: Þessi þjóð vinnur Eurovision

Stefán Árni Pálsson í Lissabon skrifar
Það er komið að úrslitastundu í Eurovision en lokakvöldið fer fram í kvöld í Altice-höllinni í Lissabon. 

Í Júrógarðinum í dag fær Stefán Árni til sín góðan gest, en það er Eurovision-sérfræðingurinn Laufey Helga Guðmundsdóttir.

Saman ræddu þau um kvöldið í kvöld og hvað mætti búast við. Hvaða lag væri sigurstranglegust og Laufey spáði fyrir um hvaða þjóð færi alla leið. Laufey ætlar síðan að gefa öllum lögum einkunn og umsögn í beinni textalýsingu Vísis í kvöld. 

Umsjónarmaður þáttarins er Stefán Árni Pálsson sem er staddur út í Lissabon. Hann fær til sín góða gesti í heimsókn á hverjum degi.

Fréttastofa Vísis og Stöðvar 2 hefur veirð með ítarlega umfjöllun frá Eurovision í Lissabon. Fréttamaðurinn Stefán Árni Pálsson sér um vefþáttinn Júrógarðinn og aðra umfjöllun hér á Vísi og í fréttum Stöðvar 2 á hverjum degi í gegnum alla keppnina.


Tengdar fréttir

Júrógarðurinn: Sérfræðingar spá í spilin

Ari Ólafsson kemur fram á dómararennslinu í Eurovision í Lissabon í kvöld en hann gekk bláa dregilinn við MAAT listasafnið í borginni í gær og síðan er komið að stóru stundinni annað kvöld.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×