Enski boltinn

Birkir og félagar í góðum málum

Leikmenn Aston Villa fagna í dag.
Leikmenn Aston Villa fagna í dag. vísir/getty
Birkir Bjarnason og félagar í Aston Villa eru í góðri stöðu eftir fyrri umspilsleikinn gegn Middlesbrough en Villa vann 1-0 sigur. Barist um sæti í ensku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð.

Eina mark leiksins kom á 15. mínútu er Mile Jedinak skoraði eftir undirbúning Jack Grealish en 1-0 útisigur Villa staðreynd.

Leikið var á Riverside-leikvanginum svo Villa fer með 1-0 forskot á heimavöllinn.

Á þriðjudaginn mætast liðin á ný en liðið sem fer í úrslit mætir Fulham eða Derby í úrslitaleik um sæti í úrvalsdeildinni.

Birkir kom inn á sem varamaður á 81. mínútu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×