Fótbolti

Norrköping hafði betur í Íslendingaslag

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Jón Guðni og félagar héldu hreinu.
Jón Guðni og félagar héldu hreinu. vísir/norrköping
Elías Már Ómarsson var í byrjunarliði Gautaborgar sem fékk Íslendingalið Norrköping í heimsókn í sænsku úrvalsdeildinni í dag.

Jón Guðni Fjóluson, Guðmundur Þórarinsson og Arnór Sigurðsson voru allir í byrjunarliði gestanna en Alfons Sampsted sat allan tímann á varamannabekknum.

Eftir markalausan fyrri hálfleik reyndust gestirnir sterkari í þeim síðari þar sem þeir Kalle Holmberg og Simon Skrabb sáu um markaskorun.

Elías og Arnór fóru báðir útaf eftir klukkutíma leik en Jón Guðni og Guðmundur léku allan leikinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×